Dani Alves hefur tjáð sig um endurkomuna til Barcelona en þessi 38 ára leikmaður er kominn aftur eftir fimm ára fjarveru.
Alves var átta ár hjá Börsungum og vann allt sem hægt var að vinna. Hann lék síðast fyrir Sao Paolo. Hann kláraði læknisskoðun í Barcelona í dag.
Alves var átta ár hjá Börsungum og vann allt sem hægt var að vinna. Hann lék síðast fyrir Sao Paolo. Hann kláraði læknisskoðun í Barcelona í dag.
Xavi, sem er nýtekinn við Barcelona, vildi fá Alves í hóp sinn.
„Ég lagði mikið á mig til að opna þennan möguleika á endurkomu og ég er afskaplega ánægður. Að vinna aftur með fólki sem ég þekki vel eru forréttindi," segir Alves.
„Þetta er stórkostlegt tækifæri, ótrúleg áskorun. Að snúa aftur og klæðast treyjunni að nýju gefur mér styrk og adrenalín."
Dani Alves is #MondayMotivation pic.twitter.com/d3QrBhnnAr
— FC Barcelona (@FCBarcelona) November 15, 2021
Athugasemdir