Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 15. nóvember 2021 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dembele ætlaði ekki að láta sekta sig aftur
Ousmane Dembele.
Ousmane Dembele.
Mynd: EPA
Það voru fréttir um það í síðustu viku að Ousmane Dembele hefði verið sektaður af nýjum þjálfara Barcelona - Xavi - fyrir brot á reglum hans.

Xavi tók við Barcelona í síðustu viku og var fljótur að koma inn með nýjar reglur.

Fyrsta reglan á blaði er sú að: Leikmenn þurfa að mæta að minnsta kosti einum og hálfum tíma fyrir æfingar.

Dembele klikkaði strax og mætti of seint. Hann var sektaður fyrir það. Hann lærði sína lexíu. Hann ætlaði ekki að fá aðra sekt fyrir æfingu í dag og var mættur fyrstur á æfingasvæðið.

Xavi er sagður mjög hrifinn af Dembele og lítur á hann sem mikilvægan hluta af plönum sínum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner