Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. nóvember 2021 13:00
Elvar Geir Magnússon
Gerrard: Fer á Anfield til að reyna að sækja öll stigin
Steven Gerrard, stjórinn á Villa Park.
Steven Gerrard, stjórinn á Villa Park.
Mynd: EPA
Steven Gerrard, nýr stjóri Aston Villa, fer á Anfield í næsta mánuði og mætir sínu fyrrum félagi, Liverpool. Gerrard segir að þó hann sé goðsögn hjá Liverpool verði verkefni hans að reyna að fá öll stigin úr leiknum.

Leikurinn gegn Liverpool verður fimmti leikur Gerrard sem stjóri Villa

„Það sem er mikilvægt er möguleikinn að fara á Anfield og sækja sigur. Það er hugarfarið og markmiðið sem við viljum skapa fyrir hven einasta leik. Ég vil vinna alla leiki," segir Gerrard.

„Ég get lofað stuðningsmönnum Aston Villa að ég mun gefa allt sem ég á til Aston Villa. Þegar ég tek að mér verkefni þá fer ég 100% í það."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner