Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 15. nóvember 2021 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kórdrengir gerðu tilboð í Sigurjón Daða síðasta sumar
Lengjudeildin
Sigurjón Daði Harðarson.
Sigurjón Daði Harðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengir buðu í Sigurjón Daða Harðarson, markvörð Fjölnis, síðasta sumar.

Þetta kom fram í Dr Football hlaðvarpinu í dag. Albert Brynjar Ingason, fyrrum sóknarmaður Kórdrengja, staðfesti það.

„Kórdrengir voru mjög metnaðarfullir... þeir buðu í Sigurjón, markvörð hjá Fjölni," sagði Hjörvar Hafliðason og sagðist Albert geta staðfest það.

Kórdrengjum vantaði markvörð og sömdu á endanum við markvörð frá Noregi, Alexander Pedersen. Hann kláraði tímabilið með liðinu. Óvíst er hvort hann verði áfram.

Sigurjón Daði er einn af efnilegri markvörðum landsins. Hann er tvítugur að aldri og spilaði hann alla leiki Fjölnis í Lengjudeildinni síðasta sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner