Ísland lauk keppni í undankeppni HM í gær þegar liðið tapaði 3-1 fyrir Norður-Makedóníu.
Dregið verður í Þjóðadeild UEFA fimmtudaginn 16. desember. Drátturinn fer fram í Montreux í Sviss og hefst hann kl. 17:00 að íslenskum tíma.
Ísland féll úr A-deild Þjóðadeildarinnar í fyrra og mun því leika í B-deildinni þegar næsta Þjóðadeild fer af stað á næsta ári.

Ísland er í fyrsta styrkleikaflokki B-deildarinnar og getur því ekki dregist með Úkraínu, Svíþjóð eða Bosníu í riðli.
Keppni í Þjóðadeildinni hefst í byrjun júní á næsta ári og lýkur í lok september.
Fyrsti styrkleikaflokkur
Úkraína
Svíþjóð
Bosnía og Hersegóvína
Ísland
Annar styrkleikaflokkur
Finnland
Noregur
Skotland
Rússland
Þriðji styrkleikaflokkur
Ísrael
Rúmenía
Serbía
Írland
Fjórði styrkleikaflokkur
Slóvenía
Svartfjallaland
Albanía
Armenía
Athugasemdir