Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. nóvember 2021 14:00
Elvar Geir Magnússon
Vlahovic: Get ekki beðið eftir HM
Dusan Vlahovic fagnar með Serbíu.
Dusan Vlahovic fagnar með Serbíu.
Mynd: EPA
Dusan Vlahovic, sóknarmaður Fiorentina, segist ekki geta beðið eftir HM í Katar. Vlahovic hjálpaði Serbíu að vinna Portúgal og tryggja sér þar með farseðilinn til Katar.

Sjá einnig:
Sjö af þrettán Evrópusætum á HM í Katar eru frátekin

Serbar lentu undir gegn Portúgal en náðu að vinna 2-1 sigur í Lissabon þar sem sigurmarkið kom í blálokin.

„Ég get ekki beðið eftir því að spila á HM. Við viljum mæta til Katar og ná góðum úrslitum," segir Vlahovic sem er einn eftirsóttasti leikmaður Evrópu í dag.

„Við höfum sýnt það að við getum veitt öllum samkeppni. Leiðin að því að tryggja sæti sitt var ótrúleg, við gáfumst ekki upp og áttum þetta skilið."

Vlahovic hefur verið orðaður við Tottenham, Arsenal og fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni. Þá vill Juventus fá hann.

„Ég vil leggja enn harðar að mér og er hungraður í sigra og mörk. Ég hef mikinn metnað. Ef ég held áfram að standa mig þá gerast góðir hlutir. Ég mun allavega ekki hafa ástæðu til að sjá eftir nokkru."
Athugasemdir
banner
banner