Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. desember 2018 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Aðgerðin heppnaðist vel - Cancelo snýr aftur í janúar
Cancelo hefur verið meðal bestu leikmanna Juve á tímabilinu.
Cancelo hefur verið meðal bestu leikmanna Juve á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem einn besti hægri bakvörður ítölsku deildarinnar.

Hann var lánaður frá Valencia til Inter á síðasta tímabili og gerði mjög góða hluti þar, það góða að Ítalíumeistarar Juventus stálu honum eftir tímabilið og borguðu rúmlega 40 milljónir evra fyrir.

Cancelo er fjölhæfur og getur einnig leikið sem vinstri bakvörður og hægri kantmaður. Hann þykir sérstaklega hættulegur sóknarlega enda snöggur, teknískur og með góða löpp.

Cancelo meiddist fyrir tapleik Juve gegn Young Boys í Meistaradeildinni og gekkst hann undir vel heppnaða aðgerð á hægra hné í gær.

Kantmaðurinn Juan Cuadrado, sem getur líka leikið sem bakvörður, gæti einnig þurft að gangast undir smávægilega aðgerð í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner