Stuttgart hafði betur gegn Herthu Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur urðu 2-1 en Mario Gomez skoraði bæði mörk Stuttgart eftir að Hertha Berlin komst yfir.
Eftir leikinn bárust sorgarfréttir en Herbert Gentner, faðir Christian Gentner, fyrirliða Stuttgart lést á leikvanginum strax eftir leikinn í dag.
Everyone from Hertha would like to send their thoughts and condolences to Christian Gentner and his family after today's sad news.
— Hertha Berlin (@HerthaBSC_EN) December 15, 2018
„Allir frá félaginu senda hlýjar hugsanir og samúðarkveðjur til Christian Getner og fjölskyldu hans eftir þessar sorglegu fréttir, segir á Twitter reikning Hertu Berlin eftir leikinn í dag.
Gentner spilaði allan leikinn á miðju Stuttgart en hann hefur spilað með félaginu stærstan hluta síns ferils. Hann spilaði þó einnig með Wolfsburg um tíma en félagið sendi einmitt samúðarkveðjur eftir leikinn í dag.
Our thought are with former VfL player and current Stuttgart captain Christian Gentner, whose father passed away unexpectedly today at the VfB stadium following their game v Berlin. Our deepest condolences & best wishes are with Christian & his family during this difficult time.
— VfL Wolfsburg EN (@VfLWolfsburg_EN) December 15, 2018
Athugasemdir