Það eru tveir leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag þar sem Þór og KA mæta bæði til leiks á Kjarnafæðismótinu á Akureyri.
Þór mætir KA 2 í A-deild mótsins áður en aðallið KA á leik við nágranna sína í Völsungi.
KA 2 er skipað táningum og tapaði 4-0 gegn Magna í fyrstu umferð en Þór, KA og Völsungur eru að spila sína fyrstu leiki.
KA, sem leikur í Pepsi-deildinni, og Þór, sem er í Inkasso, eru sigurstranglegustu lið Kjarnafæðismótsins eins og áður.
Leikir dagsins:
14:15 Þór - KA 2 (Boginn)
16:15 KA - Völsungur (Boginn)
Athugasemdir