„Það var bara venjulegur dagur í skólanum fyrir Arsenal stuðningsmanninn Kyan - þangað til þetta gerðist..." er titillinn á myndbandi sem Arsenal var að gefa út. Þetta tiltekna myndband ætti að koma flestum í gott skap.
Kyan segist í myndbandinu vera stuðningsmaður Arsenal og að uppáhaldsleikmaðurinn hans sé Mesut Özil.
„Jafnvel þó svo að ég spili í vörn þá hefur hann alltaf veitt mér innblástur," sagði Kyan.
Svo birtist títtnefndur Özil og kom Kyan heldur betur á óvart.
Viðbrögð Kyan eru mögnuð en myndbandið er hér að neðan.
Özil dreifði myndbandinu sjálfur og skrifaði við það: „Nei vinur, þetta er ekki draumur. Augnablik eins og þessi eru bara stórkostleg."
No, mate - you're not dreaming 😉 Moments like this are just wonderful ❤ #M1Ö #YaGunnersYa #AFCgivingtogether @AFC_Foundation pic.twitter.com/FigKZJzoQj
— Mesut Özil (@MesutOzil1088) December 14, 2018
Athugasemdir