Paul Pogba hefur mikið verið gangrýndur fyrir frammistöðu sína á vellinum með Manchester United á tímabilinu.
Hann hefur verið inn og út úr liðinu hjá Jose Mourinho og er til að mynda ekki í líklegu byrjunarliði Manchester United gegn Liverpool á morgun samkvæmt breska fjölmiðlinum Guardian.
Sjá meira:
Líkleg byrjunarlið Liverpool og Man Utd - Enginn Pogba
Jesse Lingard og Pogba virðast vera mestu mátar en þeir eru oft að bralla eitthvað saman ef marka má samfélagsmiðla þeirra beggja.
Lingard fagnar í dag 26 ára afmæli sínu og bauð franski landsliðsmaðurinn upp á afmæliskveðju sem virðist vera tekinn í klefanum á æfingasvæði Manchester United.
Í bakgrunn sést Marcus Rashford, sem virtist skemmta sér vel með þeim félögum.
Einhverjir stuðningsmenn United hafi lýst yfir óánægju með þetta uppátæki Pogba og segir að hann eigi að vera að hugsa um allt aðra hluti, enda einn stærsti leikur tímabilsins á morgun. Dæmi hver fyrir sig.
Hér að neðan má sjá Paul Pogba óska Lingard til hamingju með daginn.
Paul Pogba - more excited about it being Jesse Lingard’s birthday than Jesse Lingard is 😂#MUFC pic.twitter.com/WwBjEXAHzN
— Match of the Day (@BBCMOTD) December 15, 2018
Athugasemdir