Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 15. desember 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Alfreð mætir Schalke í fallbaráttunni
Mynd: Getty Images
Það fara sex leikir fram í efstu deild í Þýskalandi í dag og eiga Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg heimaleik gegn Schalke í fallbaráttunni.

Bæði lið eru nokkrum stigum fyrir ofan fallsæti eftir fjórtán umferðir og er Augsburg búið að tapa fjórum leikjum í röð.

Alfreð þarf því að reima á sig skóna og vonandi koma sínum mönnum til bjargar í dag.

Þýskalandsmeistarar Bayern München þurfa sigur gegn Hannover ef þeir ætla að reyna að halda í við topplið Borussia Dortmund sem er með níu stiga forystu.

Dortmund tekur á móti Werder Bremen í síðasta leik dagsins, en Aron Jóhannsson verður ekki með frekar en áður vegna ökklameiðsla.

Hoffenheim tekur á móti Borussia Mönchengladbach í áhugaverðum leik og þarf Stuttgart sigur gegn Hertha Berlin.

Leikir dagsins:
14:30 Augsburg - Schalke
14:30 Hannover - Bayern
14:30 Düsseldorf - Freiburg
14:30 Hoffenheim - B. M'Gladbach
14:30 Stuttgart - Hertha Berlin
17:30 Dortmund - Werder Bremen
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner
banner