Varnarmaðurinn Daley Blind ræddi við menn hjá Ajax áður en HM í Katar hófst. Ræddi hann við þá um að fá að yfirgefa félagið þegar janúar gengur í garð.
Blind, sem er 32 ára, er uppalinn hjá Ajax og hefur leikið lengst af hjá félaginu. Hann kom inn í akademíu félagsins þegar hann var aðeins átta ára gamall.
Hann hefur verið mikilvægur leikmaður fyrir félagið undanfarin ár en á þessari leiktíð hefur hann ekki verið í náðinni hjá þjálfaranum Alfred Schreuder.
Blind, sem var í mikilvægu hlutverki hjá Hollandi á HM, er núna í fríi en hann ætlar að skoða möguleika sína þegar hann kemur úr fríinu. Hann sendi inn félagaskiptabeiðni áður en hann fór á mótið. Hann ætlar ekki að eyða síðustu árum ferilsins á varamannabekknum.
Ajax væri til í að halda Blind en ætlar að leyfa honum að fara af virðingu fyrir leikmanninum.
Samkvæmt De Telegraaf þá hefur Antwerp í Belgíu áhuga á Blind.
Athugasemdir