Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. desember 2022 09:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brattur fyrir úrslitaleikinn - „Messi hræðir okkur ekki"
Theo Hernandez.
Theo Hernandez.
Mynd: EPA
Undanúrslitin á HM í Katar kláruðust í gær. Ljóst er að Argentína og Frakkland mætast í úrslitum.

Frakkland lagði Marokkó að velli í gær, 2-0, en þar skoraði Theo Hernandez fyrra mark leiksins.

Bakvörðurinn fór í viðtal eftir leik þar sem hann sagði það að Frakkar hræddust ekki Lionel Messi sem hefur verið einn besti leikmaður mótsins, og er einn besti fótboltamaður sögunnar ef ekki bara sá allra besti.

„Þetta var erfitt en við erum komnir í úrslitin," sagði Hernandez eftir leik.

„Ég er þreyttur en við þurfum að fara að hugsa um úrslitaleikinn. Messi hræðir okkur ekki. Argentína er með ótrúlegt lið en við höfum nokkra daga núna til að fara vel yfir þá."
Athugasemdir
banner
banner
banner