Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. desember 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Líktu Griezmann við Kante
Mynd: Getty Images

Antoine Griezmann hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína fyrir franska landsliðið á HM í nýrri stöðu.


Lestu um leikinn: Frakkland 2 -  0 Marokkó

Griezmann er þekktur fyrir að spila mjög framarlega en hann hefur verið að spila aftar með franska landsliðinu eiginlega svokallað 'box-to-box' hlutverk þar sem hann sinnir bæði sóknar og varnarvinnu.

Landi hans, Paul Pogba, sem er ekki í hópnum vegna meiðsla birti mynd á Instagram í gærkvöldi þar sem hann skrifaði 'Griezmannkante' þar var hann að lýsa því að Griezmann spili eins og Kante sem er þekktur fyrir að vera mikill stríðsmaður á miðjunni.

Kante spilar með Chelsea en Dider Drogba goðsögn hjá Lundúnarliðinu tók í sama streng og Pogba.

„Antoine Griezmann hefur komið mér á óvart en hann hefur gáfurnar og gæðin til að gera þetta. Hann lítur meira út eins og Kante en Griezmann," sagði Drogba.


HM hringborðið - Þeir bestu leika til úrslita
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner