Fimmta umferðin í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna hefst í kvöld með fjórum leikjum.
Juventus, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, verður að vinna Zurich og treysta á að Arsenal vinni Lyon til að eiga möguleika á að komast áfram.
Liðið er í 3. sæti, tveimur stigum á eftir Lyon þegar tvær umferðir eru eftir.
Rosengard er fallið úr leik en Bayern getur tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum með sigri á sænska liðinu á útivelli.
Barcelona getur einnig tryggt sér sæti í 8 liða úrslitunum með hagstæðum úrslitum gegn Benfica.
CHAMPIONS LEAGUE: Group stage - Women
17:45 Juventus W - Zurich W
17:45 Rosengard W - Bayern W
20:00 SL Benfica W - Barcelona W
20:00 Arsenal W - Lyon
Athugasemdir