Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. janúar 2019 20:39
Brynjar Ingi Erluson
Cardiff að fá Niasse frá Everton
Oumar Niasse spilar með Cardiff seinni hluta tímabilsins
Oumar Niasse spilar með Cardiff seinni hluta tímabilsins
Mynd: Getty Images
Oumar Niasse, framherji Everton á Englandi, er á leið til Cardiff City á láni út tímabilið en þetta kemur fram á Sky Sports.

Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur ekki tekist að komast í lið Marco Silva á þessari leiktíð en hann skoraði 9 mörk í 25 leikjum á síðasta tímabili.

Hann fær þó að spreyta sig í úrvalsdeildinni á þessu tímabili en hann er á leið til Cardiff City á láni út tímabilið.

Sky Sports segir að það verði gengið frá öllum helstu smáatriðum á næstu sólarhringum.

Hann verður þá liðsfélagi Arons Einars Gunnarssonar en Cardiff er í 17. sæti með 19 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner