Það er einn leikur í enska boltanum í dag, en það er síðasti leikurinn í 3. umferð ensku bikarkeppninnar.
Um er að ræða endurspilaðan leik á milli Southampton og Derby County. Southampton er í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni, en Derby er í umspilsbaráttu í Championship-deildinni.
Fyrri leikur liðanna endaði með 2-2 jafntefli.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:45 og er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Sigurvegarinn úr leiknum í kvöld mætir Accrington Stanley á útivelli í næstu umferð.
Leikur dagsins:
19:45 Southampton - Derby (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir