Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 16. janúar 2019 11:40
Arnar Helgi Magnússon
Fellaini eftirsóttur - United vill 15 milljónir punda
Á förum?
Á förum?
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, miðjumaður Manchester United, gæti orðið sá fyrsti sem að Ole Gunnar Solskjær lætur fara frá félaginu.

Belgíski miðjumaðurinn hefur einungis komið við sögu í tveimur leikjum undir stjórn Solskjær. Fellaini gerði tveggja ára samning við United síðasta sumar en Mourinho var hrifinn af leikmanninum.

Fellaini var ekki í leikmannahóp Manchester United sem að mætti Tottenham á sunnudaginn. Hann er búinn að fá að vita það að félagið sé tilbúið að selja sig, einungis fyrir rétt verð þó.

AC Milan, Porto og kínverska félagið Guangzhou Evergrande eru öll sögð hafa áhuga á leikmanninum.

Manchester United mætir Brighton í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner