Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 16. janúar 2019 20:51
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo í skýjunum með fyrsta titilinn með Juventus
Cristiano Ronaldo fagnar fyrsta bikarnum með Juventus í kvöld
Cristiano Ronaldo fagnar fyrsta bikarnum með Juventus í kvöld
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo vann í kvöld fyrsta titilinn með ítalska meistaraliðinu Juventus en liðið vann AC Milan 1-0 er keppt var um Ofurbikarinn.

Ronaldo gekk til liðs við Juventus frá Real Madrid fyrir tímabilið eftir að hafa verið yfirburðaleikmaður í spænsku úrvalsdeildinni.

Það kom nokkuð á óvart er hann samdi við Juventus en hann er þegar búinn að ná í fyrsat titilinn þó svo það séu rúmir fjórir mánuðir eftir af tímabilinu.

Hann skoraði sigurmarkið á 61. mínútu eftir sendingu Miralem Pjanic í kvöld.

„Ég er ánægður. Það var markmið mitt að byrja árið 2019 með því að ná í bikar. Fyrsti titillinn er núna kominn i hús og ég gæti ekki verið ánægðari," sagði Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner
banner