Tindastóll 2 - 0 Þór/KA2
1-0 Jacqueline Altschuld ('18)
2-0 Bryndís Rut Haraldsdóttir ('25)
1-0 Jacqueline Altschuld ('18)
2-0 Bryndís Rut Haraldsdóttir ('25)
Tindastóll vann opnunarleik Kjarnafæðismótsins í kvennaflokki í gærkvöldi.
Tindastóll var mun sterkara liðið en skoraði þó ekki nema tvö mörk gegn spræku liði Þórs/KA2. Bæði lið tefldu fram mjög ungum leikmönnum.
Jacqueline Altschuld kom Stólum yfir með skalla á 18. mínútu og Bryndís Rut Haraldsdóttir tvöfaldaði forustuna á 25. mínútu.
Ekki urðu mörkin fleiri og reyndist Sara Mjöll Jóhannsdóttir markvörður Þórs/KA2 leikmönnum Stóla mjög erfið og varði ítrekað úr góðum færum.
Ásamt þessum liðum leika Þór/KA, Fjarðab/Höttur/Leiknir, Völsungur og Hamrarnir í riðlinum. Næsti leikur riðilsins er á morgun þegar Þór/KA mætir F/H/L.
Bæði lið nýttu sér sex skiptingar í leiknum sem fór fram í Boganum. Tindastóll leikur í Pepsi Max-deildinni á komandi leiktíð.
Athugasemdir