Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. janúar 2023 16:47
Elvar Geir Magnússon
Húðflúr Mudryk vekja athygli - Endurspegla ást á Jesús og fótbolta
Mudryk er þakinn húðflúrum.
Mudryk er þakinn húðflúrum.
Mynd: Instagram
Mynd: Chelsea
Í gær staðfesti Chelsea um kaup á úkraínska sóknarleikmanninum Mykhailo Mudryk. Miklar vonir eru bundnar við þennan 22 ára hæfileikaríka leikmann.

Hann er með gott úrval af húðflúrum sem hafa vakið talsverða athygli. Hér má sjá hvað hann hefur látið flúra á líkama sinn.



Aðeins Jesús
„Öll húðflúr mín hafa meiningar en 'Aðeins Jesús' er það stærsta og mikilvægasta," segir Mudryk sem er kristinn og húðflúr hans endurspegla ást hans á Jesús og fótbolta.



Aftur og aftur...
Orðið 'Aftur' er húðflúrað á hægri fót Mudryk. Alls er orðið sex sinnum á fæti hans og táknar væntanlega vinnusemina sem þarf til að komast í fremstu röð.



Hjarta við hjarta
„Kæri Guð, ef ég missi vonina í dag máttu minna mig á að áætlanir þínar eru betri en draumar mínir," stendur á ensku á brjóstkassa Mudryk. Þar er einnig hjarta sem tengist við fótbolta.




Þakklæti
„Þakka þér Guð" stendur á fingri Mudryk og á hægri hönd hans er kross.



Nýjasta húðflúrið
„Hæfileikar eru ekki nóg," stendur á hálsi Mudryk. Nýjasta húðflúr hans minnir á að það nægir ekki að hafa bara hæfileikana, það þarf að hafa rétt hugarfar og sýna vinnusemi.


Athugasemdir
banner
banner
banner