Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. febrúar 2019 16:45
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Newport og Man City: Mahrez fær tækifæri
Mynd: Getty Images
D-deildarlið Newport County mætir Englandsmeisturum Manchester City í áhugaverðum leik í 16-liða úrslitum enska bikarsins.

Newport hefur komið öllum á óvart og er búið að slá Wrexham, Leicester og Middlesbrough úr keppninni á meðan Man City er búið að spila tvo leiki og er með markatöluna 12:0.

Leikurinn hefst klukkan 17:30 á íslenskum tíma og hafa byrjunarlið beggja liða verið staðfest.

Gabriel Jesus byrjar fremstur hjá Man City sem teflir fram sóknarsinnuðu byrjunarliði. Phil Foden og Riyad Mahrez fá tækifæri en David Silva, Leroy Sane og Fernandinho byrja allir inná.

Newport: Day, Butler, Demetriou, O’Brien, Bennett, Poole, Bakinson, Labadie, Willmott, Matt, Amond.

Man City: Ederson, Zinchenko, Stones, Otamendi, Danilo, Fernandinho, Sane, D.Silva, Foden, Mahrez, Jesus.
Athugasemdir
banner
banner
banner