lau 16. febrúar 2019 23:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Guardiola ánægður með Phil Foden
Phil Foden átti frábæran leik í kvöld.
Phil Foden átti frábæran leik í kvöld.
Mynd: Getty Images
Manchester City tryggði sæti sitt í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í kvöld með 1-4 sigri á Newport County.

Englendingurinn ungi, Phil Foden var í byrjunarliði Manchester City í kvöld og hann skoraði tvö mörk, annað og þriðja mark City í leiknum. En Pep Guardiola hrósaði Foden fyrir frábært mark eftir að Newport hafði minnkaði muninn í eitt mark undir lok leiksins.

„Við vorum heppnir að Phil skoraði þetta ótrúlega þriðja mark og gerði endanlega út um leikinn."

„Stórt hrós á liðið, þeir sýndu í dag hversu miklir fagmenn þeir eru, sama hvað keppnin heitir þeir gera alltaf sitt besta," sagði Guardiola.

Næsta verkefni Manchester City er útileikur í Meistaradeildinni en þeir mæta Schalke á miðvikudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner