banner
   lau 16. febrúar 2019 21:37
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía: AC Milan hafði betur gegn Atalanta
Krzysztof Piatek skoraði tvö mörk fyrir AC Milan í kvöld.
Krzysztof Piatek skoraði tvö mörk fyrir AC Milan í kvöld.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í ítölsku úrvalsdeildinni í dag, Atalanta fékk AC Milan í heimsókn og Cagliari tók á móti Parma.

Það voru heimamenn í Atalanta sem byrjuðu betur gegn AC Milan og komust yfir á 33. mínútu. Gestunum tókst að jafna fyrir hálfleik en það gerði Krzysztof Piatek.

Hakan Calhanoglu kom AC Milan yfir þegar seinni hálfleikur var tíu mínútna gamall og sex mínútum síðar var staðan orðin 1-3 en þá skoraði Piatek annað markið sitt og þriðja mark gestanna í AC Milan.

Niðurstaðan 1-3 sigur AC Milan sem er í 4. sæti deildarinnar með 42 stig, einu stigi á eftir Inter sem á leik á morgun. Atalanta er í 7. sæti.

Í viðureign Cagliari og Parma voru þrjú mörk skoruð. Gestirnir í Parma komust yfir undir lok fyrri hálfleiks en tvö mörk Leonardo Pavoletti fyrir Cagliari í seinni hálfleik sáu til þess að stigin þrjú fóru til heimamanna.

Cagliari er í 14. sæti deildarinnar en Parma í 12. sæti.

Atalanta 1 - 3 AC Milan
1-0 Remo Freuler ('33 )
1-1 Krzysztof Piatek ('45 )
1-2 Hakan Calhanoglu ('55 )
1-3 Krzysztof Piatek ('61 )

Cagliari 2 - 1 Parma
0-1 Juraj Kucka ('40 )
1-1 Leonardo Pavoletti ('66 )
2-1 Leonardo Pavoletti ('85 )
Rautt spjald:Joao Pedro, Cagliari ('90)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 24 4 1 71 14 +57 76
2 Milan 29 19 5 5 55 33 +22 62
3 Juventus 29 17 8 4 44 23 +21 59
4 Bologna 29 15 9 5 42 25 +17 54
5 Roma 29 15 6 8 55 35 +20 51
6 Atalanta 28 14 5 9 51 32 +19 47
7 Napoli 29 12 9 8 44 33 +11 45
8 Fiorentina 28 12 7 9 41 32 +9 43
9 Lazio 29 13 4 12 36 33 +3 43
10 Monza 29 11 9 9 32 36 -4 42
11 Torino 29 10 11 8 28 26 +2 41
12 Genoa 29 8 10 11 31 36 -5 34
13 Lecce 29 6 10 13 26 45 -19 28
14 Udinese 29 4 15 10 28 44 -16 27
15 Verona 29 6 8 15 26 39 -13 26
16 Cagliari 29 6 8 15 29 50 -21 26
17 Empoli 29 6 7 16 22 43 -21 25
18 Frosinone 29 6 6 17 37 60 -23 24
19 Sassuolo 29 6 5 18 33 56 -23 23
20 Salernitana 29 2 8 19 23 59 -36 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner