Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 16. febrúar 2019 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Köstuðu grjóti í bíl Wanda Icardi - Börnin í aftursætunum
Wanda og Icardi giftust fyrir fimm árum. Wanda á þrjú börn úr fyrra hjónabandi með Maxi Lopez og tvö börn með Icardi. Hún er fædd 1986.
Wanda og Icardi giftust fyrir fimm árum. Wanda á þrjú börn úr fyrra hjónabandi með Maxi Lopez og tvö börn með Icardi. Hún er fædd 1986.
Mynd: Getty Images
Wanda Nara er eiginkona og umboðsmaður Mauro Icardi sem var fyrirliði Inter þar til bandið var tekið af honum fyrir skömmu.

Icardi brást illa við að missa fyrirliðabandið og neitaði að taka þátt í útileik gegn Rapid Vín í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.

Wanda er ekki sérlega vel liðin í ítalska knattspyrnuheiminum um þessar mundir og þá sérstaklega af stuðningsmönnum Inter, sem telja hana vera að reyna að koma Icardi burt frá félaginu.

Wanda er kennt um að Icardi hafi misst fyrirliðabandið en almenningsálit á þeim tveimur var ekki gott fyrir. Það er enn frægt þegar Wanda skildi við Maxi Lopez eftir að framhjáhald hennar með Icardi komst upp. Lopez og Icardi voru á þeim tíma liðsfélagar hjá Sampdoria, en Wanda vann skilnaðardeiluna því Lopez hafði sjálfur verið að halda framhjá.

Óánægja stuðningsmanna Inter fór þó langt yfir strikið í morgun þegar kastað var grjóti í bíl Wanda er hún keyrði með börnin sín í skólann.

Talað er um að stóru grjóti hafi verið kastað en enginn meiddist þrátt fyrir mikla skelkun.
Athugasemdir
banner
banner