Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. febrúar 2019 18:51
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Son: Mér líður alltaf best þegar ég spila fótbolta
Son Heung-Min
Son Heung-Min
Mynd: Getty Images
Suður-Kóreu maðurinn Son Heung-Min hefur verið að spila frábærlega fyrir Tottenham á þessu tímabili, hann segist ekki vita um neitt skemmtilegra en fótbolta.

„Ég reyni að njóta hverrar mínútu inn á vellinum og ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá finnst mér ekkert skemmtilegra en að spila fótbolta, mér líður alltaf best þegar ég spila fótbolta."

Son hefur eins og fyrr segir verið að spila mjög vel síðustu vikur og er búinn að skora 11 mörk í 20 deildarleikjum í vetur.

„Stundum þegar það koma erfiðir tímar hugsa ég um hversu heppinn ég er að fá tækifæri til að spila fótbolta, ég mun alltaf vera þakklátur fyrir þetta tækifæri," sagði Son að lokum.

Tottenham er úr leik í ensku bikarkeppninni og spilar því ekki um helgina, næsta verkefni Tottenham er heimsókn til Burnley um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner