Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 16. febrúar 2019 22:33
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Svava Rós skoraði í sigri - Albert kom við sögu í öruggum sigri
Svava Rós skoraði í sigri.
Svava Rós skoraði í sigri.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Íslendingar komu við sögu hjá félagsliðum sínum víða í Evrópu í dag.

Diego Jóhannesson lék allan seinni hálfleikinn í 1-0 sigri Real Oviedo á Alcorcon en Oviedo lið Diego er í 6. sæti spænsku 1. deilarinnar.

Albert Guðmundsson kom inn á á 74. mínútu í 3-0 sigri AZ Alkmaar á VVV-Venlo. Kristófer Ingi Kristinsson kom inná undir lokin þegar Vitesse sigraði Willem II 3-2. Albert og félagar í AZ eru í 4. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar en Kristófer og félagar í Willem II í 11. sæti.

Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á í seinni hálfleik þegar lið hans Ravenna tapaði 3-0 fyrir Feralpisalò.

Böðvar Böðvarsson kom ekkert við sögu í 1-0 sigri Jagiellonia á Wisla Plock í dag. Böðvar og félagar eru í 3. sæti pólsku úrvalsdeildarinnar.

Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði annað mark Kristianstad á 57. mínútu í 3-0 sigri í sænska bikarnum en liðið mætti Limhamn í dag.
Athugasemdir
banner
banner