Benfica er sagt tilbúið að selja Raul Jimenez til Wolves fyrir 30 milljónir punda.
Mexíkóski sóknarmaðurinn hefur verið mjög öflugur fyrir Wolves síðan hann kom á láni frá portúgalska félaginu. Hann er með níu mörk og fimm stoðsendingar í 26 úrvalsdeildarleikjum.
Mexíkóski sóknarmaðurinn hefur verið mjög öflugur fyrir Wolves síðan hann kom á láni frá portúgalska félaginu. Hann er með níu mörk og fimm stoðsendingar í 26 úrvalsdeildarleikjum.
Benfica gengur vel án Jimenez og talið er líklegt að kínverskir eigendur Wolves taki upp veskið í sumar og kaupi hann.
Þessi 27 ára leikmaður á stóran þátt í því að Úlfarnir eru í sjöunda sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur skorað tvö mikilvæg mörk í FA-bikarnum en Úlfarnir keppa við Bristol City á sunnudag um sæti í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir