Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 16. mars 2019 19:04
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Wolves og Man Utd: Martial og Lingard byrja
Mynd: Getty Images
Wolves tekur á móti Manchester United í 8-liða úrslitum enska bikarsins í síðasta leik kvöldsins og hafa byrjunarlið beggja liða verið staðfest.

Anthony Martial og Jesse Lingard byrja ásamt Marcus Rashford í sóknarlínu Rauðu djöflanna. Sergio Romero ver markið áfram í bikarnum og er Diogo Dalot í byrjunarliðinu.

Victor Lindelöf, Chris Smalling og Luke Shaw fullkomna varnarlínuna og eru Ander Herrera og Nemanja Matic á miðjunni ásamt Paul Pogba.

Úlfarnir tefla fram sínu hefðbundna byrjunarliði þar sem Diogo Jota og Raul Jimenez leiða sóknarlínuna.

Wolves: Ruddy, Coady, Boly, Jonny, Doherty, Neves, Dendoncker, Saiss, Moutinho, Jota, Jimenez

Man Utd: Romero, Dalot, Lindelof, Smalling, Shaw, Herrera, Matic, Pogba, Lingard, Rashford, Martial
Athugasemdir
banner