Leeds 0 - 1 Sheffield Utd
0-1 Chris Basham ('71 )
Rautt spjald:Kiko Casilla, Leeds ('90)
0-1 Chris Basham ('71 )
Rautt spjald:Kiko Casilla, Leeds ('90)
Leeds missti af tækifæri til að komast á toppinn í Championship-deildinni þegar liðið tapaði á heimavelli gegn Sheffield United í leik sem hófst klukkan 12:30.
Chris Basham skoraði eina markið í leiknum þegar um 20 mínútur voru til leiksloka.
Undir lokin var Kiko Casilla, markvörður Leeds, rekinn út af. Varnarmaðurinn Pontus Jansson fór í markið og hélt hreinu síðustu sekúndurnar.
Leeds á níu leiki eftir og er tveimur stigum á eftir toppliði Norwich. Sheffield United er í þriðja sæti með tveimur stigum minna en Leeds.
Athugasemdir