Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 16. mars 2019 22:25
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Wolves og Man Utd: Martial verstur
Mynd: Getty Images
Wolves sló Manchester United úr leik í 8-liða úrslitum enska bikarsins fyrr í kvöld þökk sé mörkum frá Raul Jimenez og Diogo Jota í síðari hálfleik.

Úlfarnir spiluðu góðan leik og verðskulduðu sigurinn. Sky hefur gefið leikmönnum einkunnir og stendur Jimenez uppi sem besti leikmaður vallarins.

Hann fær 8 í einkunn en er þó langt frá því að vera sá eini sem nær þeirri tölu, því hvorki meira né minna en sjö liðsfélagar hans fengu einnig 8 fyrir sinn þátt í sigrinum.

Sergio Romero er eini leikmaður Rauðu djöflanna sem fær hærra en 6 fyrir frammistöðu sína. Anthony Martial þótti versti maður vallarins og fær hann 4 í einkunn.

Wolves: Ruddy (7), Coady (8), Boly (8), Jonny (8), Doherty (8), Neves (7), Dendoncker (7), Saiss (8), Moutinho (8), Jota (8), Jimenez (8)

Man Utd: Romero (8), Dalot (6), Lindelof (5), Smalling (6), Shaw (6), Herrera (6), Matic (6), Pogba (5), Lingard (6), Rashford (6), Martial (4)
Varamenn: Pereira (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner