Joe Gomez, leikmaður Liverpool á Englandi, verður klár í slaginn eftir landsleikjahléið.
Gomez, sem var lykilmaður Liverpool í byrjun leiktíðar, meiddist á ökkla gegn Burnley á síðasta ári og hefur verið frá síðan.
Gomez og Virgil van Dijk mynduðu frábært miðvarðarpar en nú er útlit fyrir að þeir spli aftur saman.
Enski varnarmaðurinn verður byrjaður að æfa af fullum krafti eftir landsleikjahlé og þá verður staðan tekin hvort hann geti spilað.
„Við búumst við honum eftir landsleikjatörnina og verður þá byrjaður að æfa á fullu með hópnum og svo sjáum við hvað þetta tekur langan tíma," sagði Jürgen Klopp, stjóri Liverpool.
Athugasemdir