Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 16. mars 2019 21:12
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Fylkir og FH með nauma sigra
Tveir leikir fóru fram í B-deild Lengjubikars kvenna í dag þar sem Keflavík tók á móti FH í Reykjaneshöllinni og KR mætti Fylki í Egilshöllinni.

Þórey Björk Eyþórsdóttir gerði eina mark leiksins í Reykjanesbæ og tryggði FH mikilvægan sigur í toppbaráttunni.

Marija Radojicic gerði þá eina mark leiksins er Fylkir lagði KR að velli og eru Árbæjarstúlkur á toppi deildarinnar með sex stig eftir tvær umferðir en KR er með þrjú stig.

FH og Keflavík eru nú jöfn með sex stig eftir þrjár umferðir og því spennandi lokaumferðir framundan í toppbaráttunni.

KR 0 - 1 Fylkir
0-1 Marija Radojicic ('27)

Keflavík 0 - 1 FH
0-1 Þórey Björk Eyþórsdóttir ('33)

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner