Í gær var dregið í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Barist er um sæti í úrslitaleiknum sem fram fer í Baku þetta árið.
Slavia Prag er búið að heilla marga og er óvænt komið í 8-liða úrslit keppninnar. Slavia Prag vann Sevilla á magnaðan hátt í 16-liða úrslitunum.
Sjá einnig:
Evrópudeildin: Slavia Prag og Benfica síðust inn í 8-liða úrslitin
Slavia Prag var dregið gegn enska stórliðinu Chelsea í 8-liða úrslitunum. Leikmenn liðsins voru himinlifandi með dráttinn eins og sjá má hér að neðan. Það er greinilega mikil eftirvænting hjá þeim að mæta Chelsea.
Slavia Prague players celebrating when they drew Chelsea in the #UEL quarterfinals...
— Busy Buddies 🇳🇬™ (@thebusybuddies) March 15, 2019
Do they know something we don't?😀
pic.twitter.com/iZQDvdxBZW
Athugasemdir