Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. mars 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Reina ósáttur við að Aston Villa hafi æfingu
Mynd: Getty Images
Pepe Reina, markvörður Aston Villa, er ekki ánægður með að félagið ætli að æfa í þessari viku þrátt fyrir að kórónaveiran gangi yfir England þessa dagana.

Öllum leikjum hefur verið frestað að minnsta kosti til 3. apríl vegna veirunnar.

Mörg félög á Englandi hafa ákveðið að loka æfingasvæðum sínum tímabundið og láta leikmenn æfa heima. Aston Villa ætlar hins vegar að æfa í þessari viku.

„Á Englandi hefur verið sagt við fólk að sýna skynsemi og vera eins mikið heima og hægt er. Við vorum með frí um helgina en við eigum að æfa á mánudag (í dag)," sagði Reina í viðtali við Marca.
Athugasemdir
banner
banner
banner