Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. mars 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Betur fór en á horfðist með Rui Patricio
Rui Patricio
Rui Patricio
Mynd: Getty Images
Wolves vonast til að markvörðurinn Rui Patricio hafi sloppið við alvarleg höfuðmeiðsli eftir árekstur við liðsfélaga sinn Conor Coady í 1-0 tapinu gegn Liverpool í gær.

Leikur liðanna var stöðvaður í fimmtán mínútur vegna meiðslanna en Patricio var síðan borinn af velli.

Patricio gat rætt við liðsfélaga sína í klefanum eftir leik og sjúkraþjálfarar Wolves keyrðu hann síðan heim til sín.

Fylgst verður vel með Patricio í dag og á morgun en fyrstu fréttir benda til þess að hann hafi sloppið mun betur en óttast var í fyrstu.

Sjá einnig:
Myndband: Rui Patrício fékk þungt höfuðhögg - Ekki fyrir viðkvæma
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner