Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, segir að hann myndi frekar vilja sjá félagið kaupa Erling Braut Haaland frá Dortmund frekar en Kylian Mbappe frá PSG.
Báðir leikmennirnir eru eftirsóttir af stórliðum og hafa meðal annars verið orðaðir við Liverpool.
Báðir leikmennirnir eru eftirsóttir af stórliðum og hafa meðal annars verið orðaðir við Liverpool.
„Ég hef alltaf valið Mbappe hingað til en það er eitthvað við Haaland," sagði Carragher.
„Hann lítur út fyrir að vera klikkaður en á góðan hátt. Honum er sama um allt. Ég elskaði fagnaðarlæti hans í Meistaradeildinni fyrir framan markvörðinn."
„Ég myndi velja Haaland."
Athugasemdir