Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. mars 2021 11:30
Magnús Már Einarsson
Fanndís stefnir á að spila í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fanndís Friðriksdóttir stefnir á að spila með Val í Pepsi Max-deildinni á nýjan leik í sumar en hún eignaðist sitt fyrsta barn í síðasta mánuði.

Fanndís spilaði fyrstu fjóra leiki Vals í fyrra áður en hún dró sig í hlé.

Í gær svaraði Fanndís spurningum á Instagram hjá Heimavellinum.

Þar var hún meðal annars spurð að því hvort hún stefni á endurkomu á fótboltavöllinn í sumar.

„Ég stefni á að spila í sumar. Vonandi heldur áfram að ganga vel að æfa," sagði Fanndís á Instagram.

Hin þrítuga Fanndís hefur skorað 117 mörk í 243 leikjum í efstu deild á ferlinum. Þá hefur hún skorað 17 mörk í 109 landsleikjum.
Athugasemdir
banner