Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. mars 2021 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Hannibal Mejbri búinn að skrifa undir langtímasamning við Man Utd
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn efnilegi Hannibal Mejbri er búinn að skrifa undir langtímasamning við Manchester United.

Mejbri var fenginn frá Mónakó í ágúst 2019 og á hann 15 leiki að baki fyrir yngri landslið Frakklands.

Mejbri er aðeins 18 ára gamall og hefur fengið að láta ljós sitt skína með varaliði Man Utd þar sem hann hefur gert góða hluti ásamt Amad Diallo. Hann er búinn að skora 4 mörk og leggja 7 upp í 18 leikjum á tímabilinu.

Rauðu djöflarnir eru að leggja kapp á að samningsbinda sína efnilegustu leikmenn til að missa þá ekki frítt. Hinn efnilegi Shola Shoretire skrifaði undir langtímasamning við félagið í febrúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner