Brescia vann sinn fjórða sigur í röð er liðið vann Reggina 1-0 í B-deildinni á Ítalíu í kvöld.
Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Brescia og spilaði klukkutíma áður en honum var skipt af velli.
Tommie van de Looi skoraði eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks.
Hólmbert Aron Friðjónsson hefur verið að koma inn af bekknum hjá Brescia í síðustu leikjum en hann kom inná á 75. mínútu leiksins í dag.
Brescia er í 10. sæti með 39 stig og er að færast upp töfluna.
Bjarki Steinn Bjarkason var allan tímann á varamannabekknum er Venezia tapaði 2-3 fyrir Lecce. Venezia er í 5. sæti með 46 stig.
Athugasemdir