Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. mars 2021 23:41
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Annar sigur KH
KH vann ÍR
KH vann ÍR
Mynd: KH
ÍR 0 - 2 KH
0-1 Eva Stefánsdóttir ('55 )
0-2 Bryndís Eiríksdóttir ('67 )

KH lagði ÍR 2-0 í C-deild Lengjubikars kvenna í kvöld en liðin áttust við Hertz-vellinum. Þetta var annar sigur KH af tveimur mögulegum.

Eftir markalausan fyrri hálfleik tókst Evu Stefánsdóttur að koma KH yfir á 55. mínútu.

Bryndís Eiríksdóttir skoraði svo annað markið tólf mínútum síðar og lokatölur 2-0.

KH er með 6 stig eða jafnmörg og Fjölnir eftir tvo leiki en liðin eigast einmitt við í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner