Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. mars 2021 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Luka Modric verður áfram hjá Real Madrid
Mynd: Getty Images
Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric verður áfram hjá Real Madrid á næstu leiktíð.

Modric rennur út á samningi við spænska stórveldið í sumar en fréttamaðurinn virti Fabrizio Romano greinir frá því að leikmaðurinn sé búinn að ná samkomulagi við félagið um nýjan samning.

Modric er 35 ára gamall, 36 ára í september, og hefur spilað tæpa 400 leiki á níu árum í spænsku höfuðborginni.

Hæfileikar Króatans eru óumdeildir og varð hann fyrsti leikmaðurinn til að vera kjörinn bestur í heimi frá því að Lionel Messi og Cristiano Ronaldo byrjuðu að einoka nafnbótina.

Ekki er greint frá samningslengd en allt bendir til þess að hann muni gilda í eitt ár, þar til í júní 2022.
Athugasemdir
banner
banner
banner