Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. mars 2021 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meistaradeildin í dag - Real og City í kjörstöðu
Ferland Mendy fagnar marki sínu í fyrri leiknum
Ferland Mendy fagnar marki sínu í fyrri leiknum
Mynd: Getty Images
Meistaradeildin heldur áfram í kvöld, fjögur lið eru komin áfram í 8-liða úrslitin og í þessari viku ræðst hvaða fjögur lið fylgja Liverpool, Porto, PSG og Dortmund í næstu umferð.

Í kvöld mætast Real Madrid og Atalanta í Madríd. Real Madrid er með eins marks forskot eftir fyrri leikinn í Bergamo. Remo Freuler fékk að líta rauða spjaldið í fyrri leiknum og er í banni í kvöld.

Manchester City leiðir 2-0 eftir fyrri leikinn í Þýskalandi. City-liðið er á miklu skriði þrátt fyrir hikst gegn Man Utd um daginn. Það yrðu ein óvæntæstu úrslit seinni ára ef Gladbach snýr dæminu við.

Meistaradeildin er á Stöð 2 Sport.

CHAMPIONS LEAGUE: 1/8 Final
20:00 Real Madrid - Atalanta
20:00 Man City - Gladbach
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner