Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. mars 2021 17:28
Elvar Geir Magnússon
Pickford ekki með í komandi landsleikjum Englands
Pickford missir af fyrstu landsleikjum Englands í undankeppni HM.
Pickford missir af fyrstu landsleikjum Englands í undankeppni HM.
Mynd: Getty Images
Jordan Pickford verður ekki með Englandi í þeim þremur leikjum sem eru framundan í undankeppni HM. Markvörðurinn á við vöðvameiðsli að stríða.

Pickford er aðalmarkvörður Englands og Everton en hann missir af leikjum gegn San Marínó, Albaníu og Póllandi; fyrstu landsleikjum Englendinga í undankeppninni.

Nick Pope, markvörður Burnley, mun væntanlega leysa Pickford af hólmi. Dean Henderson, markvörður Manchester United, verður væntanlega einnig í hópnum og þá gæti Sam Johnstone hjá West Brom verið valinn sem þriðji markvörður.

Pickford verður heldur ekki með Everton þegar liðið mætir Manchester City í 8-liða úrslitum FA-bikarsins á laugardag. Everton vonast til að Robin Olsen varamarkvörður verði klár í þann leik.
Athugasemdir
banner
banner