Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 16. mars 2021 18:00
Elvar Geir Magnússon
Silva og Abraham snúa aftur eftir landsleikjagluggann
Tammy Abraham.
Tammy Abraham.
Mynd: Getty Images
Thiago Silva og Tammy Abraham verða ekki með Chelsea í Meistaradeildinni annað kvöld.

Silva hefur ekki spilað fyrir Chelsea síðan hann haltraði af velli í fyrri hálfleik í sigri gegn Tottenham þann 4. febrúar. Brasilíski varnarmaðurinn meiddist á læri.

Hann var í leikmannahópnum gegn Everton á dögunum en varð síðan fyrir bakslagi á æfingu.

Abraham er að jafna sig af ökklameiðslum sem hann fékk í sigurleik gegn Newcastle. Tuchel segir að báðir leikmennirnir ættu að verða klárir eftir landsleikjagluggann.

Chelsea verður einnig án Mason Mount og Jorginho á morgun þar sem þeir verða í banni.

Chelsea vann fyrri leikinn gegn Atletico Madrid 1-0 með frábæru marki Olivier Giroud. Leikurinn annað kvöld verður á Stamford Bridge.
Athugasemdir
banner
banner
banner