þri 16. mars 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þróttarar skemmta sér og öðrum á Stöð 2
Mynd: Þróttur / Jón Ólafs
Mynd: Þróttur / Jón Ólafs
Mynd: Þróttur / Jón Ólafs
Þróttur R. verður með sjónvarpsþátt á Stöð 2 sem verður aðgengilegur frá og með fimmtudagskvöldinu 18. mars. Greiða verður fyrir þáttinn og mun ágóði renna til styrktar knattspyrnudeildar Þróttar.

Tilkynning frá Þrótturum:
Stöð 2 frumsýnir á fimmtudagskvöldið 18. mars glænýjan skemmtiþátt sem framleiddur er, saminn og fluttur af Þrótturum úr Knattspyrnufélaginu Þrótti í Reykjavík.

Þátturinn hefur fengið nafnið Hjartað í Reykjavík og hægt er að nálgast hann með því að kaupa stakan viðburð hér.

Öll herlegheitin fást fyrir litlar 2.900 krónur. Afar auðvelt er að nýskrá sig án nokkurra frekari skuldbindinga Þeir sem eru með myndlykil frá Stöð 2 finna þáttinn undir „Viðburðir”. Það opnast fyrir þáttinn fimmtudagskvöldið 18. Mars, kl. 20:00.

Þeir Jón Ólafsson, góði og Bolli Már Bjarnason hafa veg og vanda af þessum þætti og halda utan um hann frá upphafi til enda.

Gestir þáttarins eru fjölmargir og kunna svo sannarlega að skemmta sér og öðrum í tali og tónum, Jón spilar sjálfur og syngur, Hildur Vala mætir með flauelsröddina, Halldór Gylfason verður að sjálfsögðu með, Sóli Hólm og Sólrún Diego fara á skipulagskostum, Eyjólfur Kristjánsson lætur í sér heyra og hjónaleysin og tónlistarfólkið Sigurður Einarsson og Ingibjörg Fríða Helgadóttir töfra fram eitthvað óvænt. Síðast en ekki síst; fyrirliðar karla- og kvennaliðsins, Daði Bergs og Álfhildur Rósa sýna sér nýjar hliðar og og ungstirnið Egill Helgason - okkar Egill Helgason - lætur ljós sitt skína.

Einhverjir vilja meina að svona nokk hljóti að teljast algerlega einstakt framtak; Evrópumet eða heimsmet í framlagi sjálfboðaliða og velunnara.

Með honum viljum við Þróttarar þakka hvert öðru fyrir stuðninginn og samstöðuna í gegnum tíðina og opna öðrum dyrnar inn í Hjartað í Reykjavík.

Allur ágóði af þættinum rennur til Knattspyrnudeildar Þróttar sem ég veit að vill gjarna nota tækifærið og þakka bæði Lúxor og Stöð2 fyrir einstakan rausnarskap og áhuga.

Hér gildir svo sannarlega að allir eru velkomnir að skjánum.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner