Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 16. apríl 2018 16:27
Elvar Geir Magnússon
Tierney undir smásjá Mourinho
Kieran Tierney.
Kieran Tierney.
Mynd: Getty Images
Manchester United vill fá bakvörðinn Kieran Tierney hjá Celtic.

Samkvæmt Mirror er það forgangsatriði hjá Jose Mourinho að fá inn nýjan vinstri bakvörð.

Njósnarar félagsins hafa fylgst grannt með hinum tvítuga Tierney.

Einnig hefur verið horft til Danny Rose hjá Tottenham og Alex Sandro hjá Juventus.

Tierney er talinn eitt mesta efni Bretlandseyja, hann getur spilað í báðum bakvarðastöðunum og einnig leyst stöðu miðvarðar.

Strákurinn er í miklum metum hjá Celtic en forráðamenn skoska félagsins gera sér grein fyrir því að það verði erfitt að halda leikmanninum þegar stór félög sýna áhuga.

Arsenal er meðal félaga sem hafa verið að fylgjast með Tierney.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner