Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 16. apríl 2018 15:34
Elvar Geir Magnússon
Völdu þrjá bestu leikmenn Man Utd á tímabilinu
Besti leikmaður Manchester United.
Besti leikmaður Manchester United.
Mynd: Getty Images
Tímabilið hjá Manchester United hefur ekki verið upp á marga fiska. Liðið komst ekki nálægt Manchester City í titilbaráttunni og féll úr leik gegn Sevilla í Meistaradeildinni.

Ýmsir leikmenn hafa ekki náð að standa undir væntingum en svo eru aðrir sem hafa staðið fyrir sínu.

Paul Pogba var mjög góður fyrir áramót en frammistaða hans hefur dalað mikið. Að sama skapi hefur Nemanja Matic ekki náð að halda sama flugi og hann var á í upphafi tímabils.

Ashley Young hefur sýnt góðan stöðugleika í vinstri bakverði og Marcus Rashford og Anthony Martial átt mjög góða kafla.

Strákarnir á Goal.com völdu þrjá bestu leikmenn United á tímabilinu 2017-18.

3. JESSE LINGARD
Hefur tekið næsta skref á sínum ferli á þessu tímabili og spilað stórt hlutverk í liði Jose Mourinho. Hefur skorað mikilvæg mörk og sigrast á samkeppninni.

2. ROMELU LUKAKU
Kominn með 26 mörk á tímabilinu, Sýnt stöðugleika í markaskorun og virðist líklegur til að geta orðið enn betri á næsta tímabili.

1. DAVID DE GEA
Tímabil eftir tímabil er besti leikmaður United markvörðurinn. Hringir kannski einhverjum viðvörunarbjöllum. Það mikilvægasta fyrir United í sumarglugganum er að halda spænska markverðinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner