KB 2 - 1 Snæfell
0-1 Matteo Tuta ('9)
1-1 Praveen Gurung ('15)
2-1 Eiður Bragi Benediktsson ('49)
0-1 Matteo Tuta ('9)
1-1 Praveen Gurung ('15)
2-1 Eiður Bragi Benediktsson ('49)
Síðasti leikur 1. umferðar Mjólkurbikars karla fór fram á Leiknisvelli í Breiðholti í gærkvöldi. KB tók þá á móti Snæfelli frá Stykkishólmi.
Leikurinn átti upphaflega að vera fyrir helgi en var frestað vegna veðurs.
Bæði lið leika í 4. deildinni en það voru heimamenn sem fögnuðu sigri. Eiður Bragi Benediktsson skoraði sigurmarkið snemma í seinni hálfleik.
KB mun mæta Ægi í næstu umferð, leikurinn verður á fimmtudaginn á Leiknisvelli.
Athugasemdir